Poll without page-refresh
Article on other languages:
Föll eru fyrirbæri í sumum tungumálum sem notuð eru til þess að breyta eðli fallorða eftir kringumstæðum eða umræðuefni. Misjafnt er eftir tungumálum hvaða orðflokkar teljast til fallorða, en í íslensku teljast til þeirra nafnorð , lýsingarorð , fornöfn , töluorð og greinir . Í íslensku telst þolfallið , þágufallið og eignarfallið til aukafalla .
Hér er listi yfir þau föll sem til eru í ýmsum tungumálum. Alls ekki öll tungumál hafa orð sem beygjast í föllum, raunar mjög fá, en þó er upptalningin hér að neðan hvergi tæmandi.
Fall
Enskt heiti
Notkun
Dæmi
Dæmi um mál sem nota fallið
Fjarverufall
Abessive
skortur á e-u
án hússins
finnska
Sviptifall
Ablative (1)
algilt óbeint fall
varðandi húsið
latína , sanskrít , litháíska
Sviptifall
Ablative (2)
tilfærsla frá e-u
burt frá húsinu
latína , finnska
Absolutive
efni sagna í framsöguhætti eða hlutur sagna í boðhætti
húsið [so.frh.]; [so.bh.] húsið
baskneska
Þolfall
Accusative
bein tilvísiun í þolanda
um hús
finnska , þýska , esperanto , latína , gríska , rússneska , serbneska , litháíska
Nærverufall
Adessive
staðsetning í grennd
hjá / á / við húsið
finnska , litháískar mállýskur
Tilgangsfall
Allative
færsla á eitthvað
ofan á húsið
finnska
Samvistarfall
Comitative
í félagi við e-ð/e-n
ásamt húsinu
eistneska , finnska , ungverska
Samanburðarfall
Comparitive
að jafna saman orð
ég er jafnstór þér
téténska
Þágufall
Dative
sýnir móttakanda eða stefnu, óbeint fall
frá húsinu
þýska , latína , rússneska , serbneska , hindi , litháíska
Virðingarfall
Dedative (Respective)
með hliðsjón af e-u
með tilliti til hússins
quenya
Disjunctive
notað þegar að viðfangsefnið er endurtekið til aherslu eða vegna upptalningar
húsið og bíllin eru bæði hér
franska
Úrferðarfall
Elative
út úr e-u
úr húsinu
finnska , eistneska , ungverska
Þollfallsleysingisfall
Ergative
samskonar og nefnifall ef að viðfangsefnið framkvæmir e-ð í framsöguhætti
húsið [so.frh]
baskneska , samóíska , téténska , inuktitut
Verufall
Essive
skilyrði
sem húsið
finnska , mið-egypska
Eignarfall
Genitive
sýnir tengsl eða eign eða skilgreinir nánar stýrandi orð
til hússins
finnska , þýska , latína , rússneska , serbneska , gríska , hollenska , litháíska
Íferðarfall
Illative
færsla inn í e-ð
inn í húsið
finnska , litháíska
Íverufall
Inessive
inni í e-u
í húsinu
eistneska , finnska , ungverska
Tækisfall
Instrumental / Instructive
notkun á e-u
með húsinu
rússneska , serbneska , finnska , sanskrít , litháíska
Staðarfall
Locative
staðsetning
á húsinu / í húsinu / við húsið
serbneska , klingónska , sanskrít , lettneska , kasakska , (latína )
Nefnifall
Nominative case
almennt fall
hér er hús
nánast öll tungumál sem beygjast í föllum
Oblique
almennt fall
varðandi húsið
hindi
Deildarfall
Partitive
notað vegna fjölda
[þrjú] húsanna
finnska
Eignartilvísunarfall
Possessive case
bein eign á e-u
í eigu hússins
quenya
Postpositional
þegar að forsetning kemur á eftir nafnorði
húsið í / á / við / með
hindi
Forsetningarfall
Prepositional
þegar að forsetning kemur á undan nafnorði
í / hjá / með húsinu
rússneska
Prolative
færsla eftir fleti eða braut
meðfram / í gegnum húsið
eistneska , finnska
Terminative case
endir tilfærslu eða tímabils
þar til að húsið [springur]
eistneska
Áhrifsfall
Translative
breyting úr einu ástandi í annað
[maðurinn er að breytast] í hús
finnska , ungverska
Ávarpsfall
Vocative
notað til ávarpa
Hús!
latína , gríska , serbneska , sanskrít , litháíska
Tengt efni